Mars og apríl 2005...
Brauð mánaðarins mánuðina mars og apríl er Pompei-brauð sem búið er til úr brauðblöndunni Pom Frisch.
Brauðið er mjög gott og safaríkt, inniheldur meðal annars kartöflur og er ríkt af A- og C-vítamínum ásamt því að vera sterkjuríkt.
Uppskrift:
2,5 kg Hveiti
0,825 kg Pom-frisch
0,125 kg Ger
0,080 kg Olía
0,075 kg Olympial super
0,050 kg Salt
2,0 kg Vatn
Aðferð
Deighiti: 25°C
Vinnsla: 4 min. hægt
4 min. hratt
Hvílitími: 15 min.
Þyngd: 300-350 gr. Baguette
1800-2000 gr. Brekk
Hefskápur: ca.40 min.
Gufa: Svipað og hjá rúnstykkjum
Ofnhiti: 40°C niður í 180°C
Baksturstími: 20-25 min.
ANNAÐ:
Þessi uppskrift miðast við það að notað sé K-I hveiti, ef notað er K-II breytist vinnslan í 2 min. hægt og 4 min. hratt. Og þar sem þessi brauð eru mjög sterkjurík þá taka þau lit mjög fljótt í bakstri. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi þessa blöndu þá endilega hafið samband.