Kornflekskökurnar hennar mömmu
100 gr smjörlíki
1 dl sykur
1 dl púðursykur
1 egg
1 tsk salt
2 dl hveiti
2 dl haframjöl
2 dl kornflex (lítillega mulið)
1 dl kókosmjöl
½ tsk matarsódi
1tsk vanilludropar
Smjörlíki og sykur hrært vel saman í hrærivél. Egginu bætt útí og aftur hrært vel. Vanilludropar settir saman við og hrært. Þurrefnum blandað saman og sett útí skálina, hrært varlega þar til deigið er orðið samfellt. Sett í kæli í a.m.k. klukkustund, má alveg vera yfir nótt. Mótaðar litlar kúlur úr deiginu, þær renna aðeins út á plötunni. Bakað við 190°C í 10-15 mín. Kökurnar verða yfirleitt aðeins dökkar á köntunum. Þegar kökurnar eru komnar úr ofninum er 1 súkkulaðidropi settur á hverja köku. Einnig má pensla þær með bræddu súkkulaði þegar þær hafa kólnað aðeins eða setja hálfa möndlu á hverja köku áður en þær fara í ofninn. Njótið vel!