Heim  Prenta  Senda

Snjódrífur

Hvítir súkkulaðidropar
200 gr sykur
200 gr púðursykur
400 gr smjör
2 egg
500 gr Kornax hveiti
2 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft


Þeytið saman í hrærivél; smjöri, púðursykri, eggjum og sykri þangað til blandan er létt og loftkennd. Sigtið hveitið og blandið við það lyftidufti og matarsóda. Skiptið um spaða í hrærivélinni (grófan spaða) og blandið þurrefnunum við blönduna. Mótið í kúlur og veltið uppúr kókosmjöli. Bakið á bökunarpappír við 180°C í 8 mín. Þegar platan er tekin úr ofninum ber að hafa hraðar hendur við að raða hvítum súkkulaðidropum ofan á hverja kúlu og þrýsta þeim varlega niður. Fallegast er að hafa kúlurnar eins litlar og mögulegt er.

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is