Regnbogasmákökur
400 gr Kornax hveiti
300 gr smjör
100 gr flórsykur
100 gr súkkulaði
1 pk mislit kokkteilber
100 gr heslihnetur, gróft hakkaðar
1 egg og sykur til penslunar
Hveiti, smjöri og flórsykri blandað saman. Súkkulaði, kokkteilberjum og heslihnetum bætt útí. Hnoðað vel. Deiginu skipt í 4 parta og rúllað upp í pylsur. Pylsurnar kældar í ísskáp í a.m.k 1-2 klst. Pylsurnar þá penslaðar með eggi og sykri og skornar í hæfilegar sneiðar. Bakað í 6-8 mín við 200°C.