Heim  Prenta  Senda

Bakstursleiðbeiningar -brauð

Hnoðað deig:
1. Til að byrja með notið nógu mikið hveiti til að deigið klístrist ekki við hendur og borð
2. Sláið deigið upp í kúlu, deigið gæti verið svolítið klístrað en þegar komin er svolítil spenna í deigið ætti það að verða mjúkt og fá fína áferð
3. Látið kúluna standa í u.þ.b. 10-15 mín áður en þið byrjið að móta deigið
4. Gott er að breiða yfir deigið með rökum klút eða með plasti. Geymið deigið á heitum stað en ekki á stað þar sem gæti blásið um deigið en það gæti orsakað að deigið myndi þorna
5. Nú væri gott að kveikja á ofninum!

Mótun á deigi:
1. Til að móta svona venjulegt ílangt brauð er gott að taka kúluna sem búið er að gera.
2. Rúllið deigið út en passið svo að rúlla ekki allt loft úr deiginu. Takið því næst í mjórri endann á deiginu og byrjið að rúlla deiginu mjög þétt upp.
3. Klípið því næst við sárið/samskeytin á deiginu saman og setjið deigið í form eða á plötu með sárið niður 

Hefun:
1. Þegar deigið hefur hefast allt í að því tvöfalt rúmmál sitt er kominn tími til að baka .
2. En til að vera viss er gott að tippla með tveimur fingrum laust á deigið u.þ.b. 1 cm ofan í deigið og ef deigið kemur ekki upp þ.e. helst svoleiðis þá hefur deigið ca tvöfaldað sig

Bakstur:
1. Ráðlegt er að fara eftir uppgefnum leiðbeiningum á bakstri en venjulega er brauð bakað á u.þ.b. 180-190°c í heimilisofni.
2. Til að vera viss um að brauðið sé fullbakað er gott að taka brauðið upp og slá í botninn ef það heyrist tómahljóð ætti brauðið að vera tilbúið.
3. Kælið brauðið vel á grind þannig að það lofti vel um það

Hugmyndir að útliti brauða:

Margt er hægt að gera til að gera brauð ennþá girnilegra;
1. Til að fá djúpan, gylltan lit er hægt að pensla brauðið með örlitlu smjöri um leið og það kemur út úr ofninum
2. Til að fá háglans er gott að pensla brauðið með eggi áður en það fer inn í ofninn
3. Ef penslað er með mjólk fáum við nokkuð góðan glans líka en mjólkina þarf að pensla á fyrir bakstur
4. Fræ eru líka mjög girnileg og gera brauð mjög falleg. T.d. er gott að nota sólkjarnafræ, sesamfræ, graskersfræ, birkifræ eða bara blöndu af þessu öllu. Gott er að pensla deigið fyrst með vatni eða eggi og velta því upp úr fræunum áður en deigið er hefað.
5. Fyrir þá sem ekki vilja setja neitt ofan á brauðið þá er fallegt að skera í deigið áður en það fer inn í ofninn. Notið flugbeittann hníf, gömlu rakvélablöðin eru best en allir hnífar með þunnu blaði koma til greina. Skerið u.þ.b. ½ cm ofan í deigið

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is