Súkkulaðibitakökur sem geta ekki klikkað
1 bolli sykur
1 bolli smjörlíki
1 bolli púðursykur
3 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
1 bolli kókosmjöl
200 gr. súkkulaðispænir
2 egg
Hnoðað gerðar lengjur, skorið í bita, gerðar kúlur og raðað á plötur og þrýst ofaná.
Bakað við 170-180 í ca 15 mín.