Heim  Prenta  Senda

Nammikökur - uppáhald barnanna

200 gr smjör
250 gr af hveiti
85 gr sykur
2 tsk vanillusykur
1 eggjarauða 

Hnoðað vel. Kælt.
Flatt þunnt út og stungnar út kökur með piparkökumótum. Penslaðar með eggjahvítu og skrautsykri stráð yfir. Bakað við 200 gráður í ca 8-10 mín.
Þessar er álíka gaman að gera með börnunum og hinar klassísku piparkökur.

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is