Heim  Prenta  Senda

Sýrópslengjur

400 g smjörlíki
400 g sykur
2 eggjarauður
2 msk sýróp
1 tsk kanill
2 tsk vanillusykur
2 tsk natron
600 g hveiti 

Smjörlíki og sykri er hrært vel saman, eggjarauður og sýrópi blandað saman við. Þá er þurrefnum bætt út í og hnoðað og velt í lengjur. Þær eru svo settar á plötu og bakað við 200 °c. Þá eru lengjurnar skornar niður í bita. Það er líka hægt að búa til litlar kúlur úr deiginu og þá eru þetta fínustu smákökur.

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is