Heim  Prenta  Senda

Kropptoppar

3 eggjahvítur
150 gr. flórsykur
2 stk pippsúkkulaði
100 gr. Nóa kropp 

Þeytið eggjahvíturnar og setjið flórsykurinn hægt út í. Brytjið pippið, merjið nóakroppið og setjið út í eggjablönduna. Hrærið varlega saman með sleif og setjið í smá toppa á bökunarplötu. Bakið við 150°C í 50 mín (ca 40 kökur).

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is