Heim  Prenta  Senda

Súkkulaði- og hnetusmákökur

2 1/4 bollar hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1 bolli mjúkt smjörlíki
3/4 bolli hvítur sykur
3/4 bolli púðursykur
1 tsk vanillu dropar
2 egg
1 bolli saxaðar hnetur
2 bollar súkkulaðibitar (hvernig sem er...) 

Forhitið ofninn í 175 gráður, blandið saman hveiti, lyftidufti og salti í litla skál. Blandið svo í aðra stóra skál smjörlíkinu, sykrinum, púðursykrinum og vanilludropunum. Því næst koma eggin, eitt í einu, og hrærið vel saman. Þá er að bæta úr hveitiblöndunni úr litlu skálinni yfir í stóru skálina og síðast koma súkkulaðibitarnir og hneturnar.

Gerið kökurnar hringlaga með hjálp teskeiðar og raðið á bökunarplötuna. Bakið þar til kökurnar verða fallega brúnar og bíðið svo í ca 10 mín eftir að þær verða kaldar....þá er bara að smakka á þeim :)

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is