Heim  Prenta  Senda

Amerískar súkkulaðibitakökur II

1,25 bolli hveiti
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. kanill
1 bolli smjör
3/4 bolli sykur
3/4 bolli púðursykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
3 bollar haframjöl
340 g. brytjað súkkulaði, best að nota gott ekta súkkulaði
Smjör, sykur, púðursykur, egg og vanilludropar er þeytt saman og þurrefnunum (nema haframjöli) bætt smám saman úti. Að lokum er haframjöli og súkkulaði blandað útí degið. Sett með teskeið á bökunarplötu (með pappír) þarf að hafa gott bil á milli því þær renna út. Bakað við 200 gráður í 8 mín ef þær eiga að vera mjúkar en í 10 mín ef þær eiga að vera stökkar.

Kornax ehf hveitimylla - Korngörðum 11 - 104 Reykjavík - 540 8700 - kornax@kornax.is