Sörur II
Setti möndlurnar í matvinnsluvélina og sjúmmm allt á fullt. Blandaði möndlum og flórsykri saman á meðan ég þeytti eggjahvíturnar og setti svo sykurinn og möndlurnar úti bæði í einu, mjög varlega. þetta gekk fínt.
Uppskriftin er:
5 eggjahvítur
6 dl flórsykur
400 gr möndlur.
Það á að baka þær í miðjum ofni í 10-15 mín við 190 gráður eða í blástursofni við 170-180 gráður
maður á að fylgjast vel með þeim, þær eiga að vera aðeins brúnar efst og eru linar þegar þær eru teknar út úr ofninum
krem:
1 1/2 dl vatn
1 1/2 dl sykur
5 eggjarauður
300 gr mjúkt smjör
2 msk kakó
2 1/2 tsk neskaffiduft.
Sykur og vatn í pott og sjóða saman í sýróp (ég setti kaffiduftið útí vatnið svo það leystist örugglega upp), þeyta rauðurnar vel og hella sýrópi útí í mjórri bunu og hræra vel. Látið kólna. Bæta smjörinu útí og þeyta vel á meðan og svo kakóið úti að lokum. Kælt vel og smurt á kökurnar.