Sörur
2 eggjahvítur
2 1/2 dl flórsykur
200 g malaðar möndlur
Eggjahvítur eru stífþeyttar og hinu blandað saman við. Bakað við 180°c í 5-10 mín.
Krem:
1/2 dl sýróp
2 eggjarauður
100 g smjör mjúkt
1 msk kakó
1 tsk neskaffi
Þeyta rauðurnar vel og hella sýrópinu varlega út í, þá smjöri og þeytt á meðan. Að síðustu er kakói og neskaffi bætt út í og hrært vel saman.
Kreminu er svo smurt á sléttu hliðina á kökunum. Kælt. Þá er bræddu súkkulaði smurt yfir kremið. Það þarf u.þ.b. 150 g af súkkulaði til að hylja kökurnar.
Það er ekkert mál að gera þetta ef þú hefur pláss í frystinum til að kæla kökurnar með kreminu og henda svo aftur inn í frystirinn meðan súkkulaðið er að storkna.