Þýskir dagar í október
Kornax tekur þátt í þýskum dögum og verður með ýmis tilboð á þýskum vörum. Fylgist með...
Matartíminn
Vorum með kynningu á frábærum nýjum brauðblöndum í neytendapakkningum á ráðstefnu 14. sept. sl. á Grand-hóteli.
Ferð til Bremen
Áætlaðri ferð okkar til Bakemark í þýskalandi í tilefni að þýskum dögum hefur verið frestað fram í mars á næsta ári vegna ónógrar þátttöku. Við þökkum þeim sem skráðu sig, en vonum að sem allra flestir sjái sér fært að koma með í mars.
Úrslit nemakeppninar
Jæja þá er nemakeppninni lokið, og það var daman í hópnum sem bar sigur úr býtum. Við hjá Kornax óskum Bylgju Mjöll Mosfellsbakaríi til hamingju með sigurinn, einnig viljum við þakka öðrum keppendum kærlega fyrir þátttökuna í keppninni.
Nemakeppni Kornax 2005
Hin árlega nemakeppni Kornax fór fram dagana 3. og 4.mars síðastliðinn í húsnæði hótel- og matvælaskólans í Kópavogi. Að þessu sinni öttu saman kappi 5 nemar sem allir höfðu hafa lokið 3. bekk í skólanum. Dómarar voru Jón Albert Kristinsson, Þór Fannberg, Bjartur Logi og stigavörður var að venju Ingólfur Sigurðsson. Bakarar, bakarameistarar, nemar og fjölskyldur keppenda þáðu léttar veitingar að keppni lokinni. Úrslit voru tilkynnt kl.17.30 á föstudeginum 4.mars. Borðin voru svo til sýnis í Smáralind laugardaginn 5.mars og bakaríum keppenda gafst kostur á að kynna sín bakarí og vörur.
Markmið Kornax er að þjónusta fyrirtæki í baksturs- og matvælageiranum.