SAGAN...
Kornax ehf. tók til starfa árið 1987 og er eina hveitimyllan á Íslandi. Fyrirtækið flytur inn korn til mölunar frá Evrópu og Ameríku og hefur um árabil séð stærsta hluta bakstursiðnaðarins fyrir mjöli. Kornax framleiðir einnig hveiti og rúgmjöl fyrir neytendamarkað. Einnig flytur fyrirtækið inn flest þau hjálparefni sem notuð eru til baksturs, t.a.m. konditorivörur, brauðblöndur, frystiefni, súra og sykur.
Eigendur Kornax voru Fóðurblandan, MR og Valsemöllen sem rekur tvær stórar hveitimyllur í Danmörku. Valsemöllen er yfir 100 ára gamalt fyrirtæki og er önnur stærsta hveitimyllan í Danmörku. Fyrirtækið býr því yfir mikilli þekkingu á mölun og þangað sækjum við mikið af okkar þekkingu. Nýr eigandi Kornax ehf frá janúar 2006 er Lífland (áður MR).
Markmið Kornax er að þjónusta fyrirtæki í baksturs- og matvælageiranum.



